Vélsleðamót



Mývatn 2011

18.-20. mars

Úrslit Mývatn 2010

 

 

Hér fyrir neðan er grunnur að dagskránni staðsetningar geta breyst alveg fram að móti. Allar ábendingar um uppákomur eru vel þegnar.

18-20. mars

Dagskrá

 

Föstudagur 18. mars


Kl. 14:00          Samhliða brautarkeppni - Kröflu
Strax að lokinni samhliðabraut         Fjallaklifur - Kröflu
Kl. 18:00          Jarðböðin
Kl. 20:30          Ísspyrna í flóðljósum úti á Mývatni - Skútustaðir
Kl. 21:30          Setning Mývatn 2010 úti á Mývatni
Kl. 21:40          Keppendur kynntir
Kl. 22:00          Flugeldasýning

Laugardagur 19.. mars

Kl.   8:00          Skoðun hjóla - Skútustaðir
Kl.   9:00          Timataka á mótorhjólum hefst
Kl. 10:00          Ískross á mótorhjólum 1. móto
Kl. 11:00          ískross á mótorhjólum 2. móto
Kl. 12:00          Ískross á mótorhjólum 3. móto
Kl. 14:00          Æfingar
Kl. 15:00          Snjókross keppni hefst - Krafla


Kl. 19:30          Vídosýning af afrekum dagsins hefst
Kl. 20:15          Veisla kvöldsins hefst í Sel - Hótel Mývatn
                               Hvanndalsbræður spila á milli rétta hress lög
Kl. 21:30          Verðlaunaafhending fyrir afrek helgarinnar
Kl. 23:00          Minni útgáfa af Von og Magni þeim við hlið

 

Fjallaklifur

Keppt er í einum flokki þar sem allar vélastærðir eru leyfðar. Valin er brött brekka ca 300m löng (fer eftir aðstæðum hverju sinni). Fjórir keppendur ræstir í einu og ekið upp brekkuna sem er með stöllum af bestu gerð. Sá sem kemur fyrstur upp kemst áfram í næstu umferð. Keppnishaldarar áksila sér allan rétt á að móta relgur að aðstæðum hverju sinni.

 

Ískross á mórorhjólum

Ekinn er braut á Mývatni sem er um 2 km löng, keppt er í þremur flokkum Opnum flokki, standard flokki og kvenna flokki. Byrjað er á tímatöku og svíðan eru ekin 3 móto í hverjum flokki, hvert þeirra tekur um 15 mínútur.

Hér er hægt að ná í keppnisreglur fyrir ísakstur.

 

Samhliða brautarkeppni – þessi gamla góða

Brautin er um 400-600 m long og er tvöföld innri og ytri hringur með hliðum sem þarf að fara í gegnum, gefin eru refsistig (5 sekúndur) fyrir að fella hlið. Allir fara í gegnum tímatöku og 8 bestu tímar komast í úrslit. Úrslitin er útsláttur sem endar með einum sigurvegara. Keppt er í tveimur flokkum opinn flokkur og heldri manna flokkur +35 ára

 

Ísspyrna

Brautin er 201 meter og er á glærum ís. Keppt er í einum flokki opinn flokkur snjósleða og er flest leift. Fyrst er tímataka til að fá uppröðun og svo einfaldur útsláttur, leitin stenfur að þeim besta/bestu sem er með mesta aflið.

  Reglur í Snocrossi

REGLUR FYRIR SNOCROSS 2009

 

Keppni þessi er haldin skv. alþjóðlegu lögbók FIM International Sporting Code (ISC) og viðaukareglum MSÍ. Viðaukareglur MSÍ gilda en komi upp ágreinigur þá gilda FIM reglur þar sem viðaukareglur MSÍ ná ekki yfir. Ef upp kemur ágreiningur um reglur skal Keppnisdómnefnd skera úr um málið. Reglur þessar gilda um allar keppnir og flokka nema annað sé tekið fram. Þátttakendur og starfslið keppninnar þmt. tæknimenn starfslið og fjárstuðningaðilar er skylt að kynna sér reglurnar og fylgja þeim.

DAGSKRÁ

Dagskrá keppninnar skal altaf vera komin í birtingu ekki seinna en hvern miðvikudag fyrir hverja keppni,

SKIPULAGNING


SKILGREINING

Skipuleggjandi og framkvæmdaaðili keppninnar er: Nafn aðildarfélags, heimilisfang. Keppnisstjórn og starfsmenn keppninnar eru: Keppnisstjóri: Ritari: Tímavörður: Brautarstjóri: Pittstjóri: Ræsir: Tengiliður keppanda: Kynnir á keppninni: Aðalskoðunarmaður/menn: Brautardómarar: Dómnefnd: Fjölmiðlafulltrúi: Heimilisfang – Nafn aðildarfélags/keppni: Heimilisfang: Sími: Fax: Birting úrslita. Tímasetning og staður. Keppnisstjórn mun kynna fyrir keppendum þann klæðnað sem starfsmenn munu vera í meðan á keppni stendur.

Almennar reglur

SLASAÐIR ÖKUMENN/SKEMMDIR SLEÐAR

1. Fjöldi keppenda sem getur verið hættulaust í braut hverju sinni, er ákveðinn af keppnisstjóra.

2. FRAMÚRAKSTUR -Ökumaður skal alltaf vera viðbúinn því að annar sleði aki framúr og skal því hafa gætur ásleðum sem nálgast aftan frá. Ökumenn eiga ekki að hindra eða tefja ökutæki í framúrakstri. Hægfara ökumenn eiga að víkja fyrir sleðum sem taka framúr.

3. ÁBYRGÐ ÖKUMANNS -Það er skylda ökumanns að tilkynna þeim starfsmanni keppni sem næstur er ef slasaður ökumaður er í braut.

4. Slasaður eða á annan hátt óhæfur ökumaður eða skemmdur sleði skulu útilokaðir frá keppni. Keppnisstjóri getur gert undantekningu telji hann ökumann eða sleða ekki hættulegan sjálfum sér, öðrum keppendum eða starfsmönnum.

5. Keppandi sem í keppni gerir enga tilraun til að ná árangri, skal ekki leyft að halda áfram keppni og á yfir höfði sér refsingu sem ákveðin er af dómara/keppnisstjóra eða FIM alþjóðlegri dómnefnd. Ákvörðun keppnisstjóra er endanleg.

ÖKUMAÐUR OG SLEÐI

1. Ökumaður og sleði hans; skrokkur og mótor, eru talin ein heild og eftir að keppni hefst má engu skipta út. (keppni hefst í fyrsta riðli) Ef ökumaður hefur keppni í flokki verður hann að ljúka keppni á sama sleða.

ENDURRÆSING KEPPNI

1. Keppnisstjóri getur endurræst keppni ef honum sýnist svo. Ákvörðun keppnisstjóra er endanleg.

2. Í því tilfelli þar sem einn eða fleiri sleðar lenda í tjóni, getur tæknistjóri úrskurðað sleða óhæfa til endurræsingar. Full öryggisskoðun á sleða/sleðum verður að hafa farið fram áður en keppni er haldið áfram.

3. Alla sleða skal stöðva undir rauðu flaggi. Flaggari gefur merki þegar aka skal hægt þar til endurræst er. Sleði valdur að stöðvun keppni og endurræsingu í kjölfarið eða sleði sem ekki kemst strax á ráslínu skal ræsa aftan við.

4. Röð keppenda í endurræsingu fer eftir röð í síðasta gilda hring. Ef minna en 1 hringur hefur verið ekinn skal endurræsa á ráslínu í upphaflegri röð.

5. Við endurræsingu þar sem ekinn hefur verið meira en 1 hringur skulu keppendur mæta á ráslínu innan 2ja mínútna.

6. Ökumaður má lyfta hendi ef bilun kemur fram á ráslínu. Ræsir bíður að hámark í 2 mínútur til að gefa ökumanni kost á lagfæringu.

7. Ef ráshlið er ekki nægilega breitt fyrir samhliða ræsingu þá ræsa stigalægri ökumenn aftan við.

8. Keppnistjóra er heimilt að endurræsa þegar henn telur best.

FLÖGG

Ökumaður SKAL hafa góðar gætur á flöggum út alla keppnina.

Grænt flagg

Braut er greið og keppni er í gangi.

Gult flagg

Allur FRAMÚRAKSTUR er ÓHEIMILL á gulu flaggsvæði. (Svæði frá gulu flaggi að atviki). Það þýðir að gult flagg er bæði flagg SKIPUNAR og upplýsinga. Ef brautarstarfsmaður í beygju heldur gulu flaggi á lofti (veifar ekki), þýðir það að framundan er atvik, hindrun getur verið í braut, hægið á og nálgist með varúð. AKIÐ EKKI FRAMÚR fyrr en ljóst er hvert atvikið er og eruð þarmeð komnir framhjá gula flaggsvæðinu. Ef gula flagginu er veifað, þýðir það að atvik er framundan, þá ER hindrun í braut, dragið verulega úr hraða og nálgist með ýtrustu varúð og sem fyrr AKIÐ EKKI FRAMÚR fyrr en ekið hefur verið framhjá atvikinu. ENGINN framúrakstur er liðinn undir gulu flaggi að því meðtöldu þegar keppinautur er vinkaður framúr. Ef keppandi vinkar þig framúr á gulu flaggsvæði, AKIÐ EKKI FRAMÚR keppandanum fyrr en þér er atvikið ljóst. Ef þú ekur framúr, VERÐUR svörtu flaggi flaggað á þig, sömuleiðis ef þú ekur framúr öðrum keppanda á gulu flaggsvæði, EINHVERN tíma. Að auki, ef keppandi hægir á og fylgir settum reglum innan gula flaggsvæðisins, og þú skynjar færi á að halda áfram án hraðaaukningar og vinna þar með upp vegalengd þó þú akir ekki framúr, VERÐUR þér refsað með stoppa-af stað refsingu.

Rautt flagg

Keppni er stöðvuð umsvifalaust! Óháð staðsetningu þinni í braut. Hægið og stöðvið með varúð, óvíst er hvort ökumenn aftan við þig hafa séð rauða flaggið. Endurræsingarröð ökumanna fer eftir síðasta hring sem keppnisstjórn taldi gilda. Enga vinnu má framkvæma á vélbúnaði án heimilda keppnisstjórnar, sé vélarhlíf lyft er litið á það sem brot á þessari reglu og sá ökumaður sem braut regluna fer aftur fyrir.

Svart flagg

Upprúllað svart flagg táknar viðvörun, annaðhvort bilun á vélbúnaði eða brotlegt framferði ökumanns. Sé því beint að þér er það viðvörun um að stöðva og engu skiptir hvaða framferði hefur vakið athygli keppnisstjórnar. Ef þú brýtur af þér undir þeim kringumstæðum þá er flagginu flaggað. Það að þér er sýnt svarta flaggið þýðir EKKI að þú sért samstundis úr keppni. Eftil vill er um stoppa-af stað refsingu að ræða. Ekki aka út úr brautinni, heldur kláraðu hringinn og hægðu varlega á og stöðvaðu við marklínu. Hafðu augun á aðalflaggaranum allan tímann því hann gæti eingöngu verið að hægja á þér ef t.d. keppinauturinn sem þú fórst framúr á gula flaggsvæðinu eða sá sem þú snertir um of við framúraksturinn, fer framhjá þér. Þá veifar hann þig með svarta flagginu opnu, sem er merki um að halda áfram. Ef brotið er talið alvarlegra getur refsingin verið stopp -af stað. Slástu aftur í leikinn með gætni. Í verstutilfellum getur flaggarinn hleypt öllum framúr eða dæmt þig úr leik. Í því tilfelli, gerðu svo vel að yfirgefa brautina með gætni og farðu í pitt.

Blátt flagg

Flagg sem sýnt er sleðum sem verið er að hringa.

Hvítt flagg

Ökumenn hafa ekið af stað í þeirra síðasta hring.

Köflótt flagg

Keppni er lokið, aktu umsvifalaust að tæknisvæðinu. Það má krefja þig um að stöðva vegna tækniskoðunar að keppni lokinni.

Vilji það til að þú sért ósammála ákvörðun keppnisstjórnar varðandi refsingu svarta flaggsins, vinsamlegast taktu þá tillit til að allar slíkar ákvarðanir eru teknar af hálfu keppnisstjóra, eftir að hann hefur safnað öllum óviðkomandi og viðkomandi upplýsingum. Sért þú ósammála, án tillits til hversu sterklega þú er ósammála, VERÐUR þú, að tala þínu máli beint og AÐEINS við keppnisstjóra með viðeigandi hætti. Aðrir brautarstarfsmenn sinna öðrum störfum og skyldum. Þitt framferði við þá er grundvöllur UMSVIFALAUSRAR BROTTVÍSUNAR. Jafnframt eru óviðeigandi hávaði og munnsöfnuður er beint er að NOKKRUM starfsmanni keppninnnar grundvöllur fyrir UMSVIFALAUSRI BROTTVÍSUN. Þetta er mótaröð atvinnumanna og þess er vænst að ALLIR þátttakendur hegði sér samkvæmt því. Að því gefnu að mótmæli þín séu gerð ljós með viðeigandi hætti, verða þau tekin til greina af hálfu keppnisstjórnar, ef þau eiga við rök að styðjast.

BRAUT YFIRGEFIN

1. Ökumenn verða að halda sig við merkta braut. Keppnisstjóri má dæma þá úr leik eða refsa með stopp -af stað refsingu fyrir að fara út fyrir merkta braut.

2. Ökumenn mega ekki stoppa í braut. Ef nauðsyn krefur (bilanir) skal stöðva við innri brún brautar. Ökumaður skal láta það hafa forgang að fjarlægja sleða úr braut, til að valda ekki hættu.

HINDRUN OG VÍTAVERÐUR AKSTUR

Keppnisstjóri getur dæmt menn úr leik eða refsað með stopp -af stað refsingu fyrir eftirfarandi:

1. Fyrir að hindra hraðari sleða vísvitandi.

2. Fyrir samkeyrslur.

3. Fyrir að aka í veg fyrir aðra.

4. Allan hættulegan og vítaverðan akstur.

5. Fyrir óíþróttamannslega framkomu á og við braut.

LOK KEPPNI

1. Rásmark er greinilega merkt.

2. Ökumaður er talinn hafa lokið keppni, þó sleði bili, komi hann honum í mark með eigin vöðvaafli.

MERKJAGJÖF

Hafi ökumaður velt eða drepið á sleða skal hann lyfta báðum höndum upp fyrir höfuð til að gefa til kynna að hann hreyfi sig ekki úr stað fyrr en allir hafa farið framhjá og til að gefa til kynna að sé ómeiddur.

ÖKUMANNSFUNDUR

Haldnir eru fundir þar sem ökumönnum er skylt að mæta til að upplýsa keppendur um legu brautar o.s.frv.

UPPHITUNARSTANDAR

1. Nota skal þar til gerða standa með hlífum til að hreinsa úr belti.

2. Bannað er að botngefa sleða.

STIGAGJÖF

1. MSÍ áskilur sér rétt til að biðja keppendur um að flytja sig upp um flokk ef þörf krefur.

2. Stig úr öllum keppnum gilda í viðkomandi mótaröð.

3. Stigagjöf er eftirfarandi:

Sæti Riðill/Úrslit
1 25
2 22
3 20
4 18
5 16
6 15
7 14
8 13
9 12
10 11
11 10
Og niður frá því..

ÖRYGGISBÚNAðUR ÖKUMANNA

ÞESSAR ALMENNU REGLUR GILDA UM ALLA FLOKKA, NEMA ANNAÐ SÉ TEKIÐ FRAM. ALLIR MEÐLIMIR ERU SKYLDAÐIR TIL AÐ VERA FULLKUNNUGT UM EFTIRFARANDI REGLUR OG HLÝTA ÞEIM.

1. Heilir hjálmar eru skilyrði. Lakksprunginn hjalmur er ónýtur. Gæðavottun frá Snell, er einnig skilyrði. Þetta er einnig skilyrði á æfingasvæði. Hjálmarnir verða ávallt að vera örugglega festir.

2. Allir ökumenn eru skyldaðir í að vera með hálskraga.

3. Skylda er að vera með viðurkenndar hnéspelkur á báðum fótum, með hlíf yfir hnéskel.

4. Hanskar og klæðnaður, skylda er að vera með góða hanska og viðurkenda sleða skó.

5. Augnvörn er skylda. Eigi ökumaður að nota sjóngler skv. Ökuskírteini ber honum einnig að gera það í keppni.

6. Skylda er að vera með heilbrynju fyrir bak og bringu (Tek Vest) Motocross brynjur uppfylla ekki þetta skilyrði.

7. Á hlífunum skulu vera axlarhlífar.

9. Mælt er með olnbogahlífum í allri keppni.

10. Gallabuxur, gallajakkar, vinnugallar, stuttermabolir og allur almennur fatnaður með dónalegum áletrunum er bannaður

11. Öllum spurningum varðandi öryggisbúnað skal beina til Tæknistjóra MSÍ

AUÐKENNI ÖKUMANNA NÚMER OG MERKI

1. Ökumenn skulu nota þau númer sem þeim er úthlutað og vera auðmerkt á baki keppanda.

2. Númer skal vera á báðum hliðum húdds í aðgreinanlegum lit, ca 15 cm háir stafir og 19 mm breiðir.

3. Ástand númera er á ábyrgð ökumanns og má neita honum um stigagjöf séu þau ekki í lagi.

VALDSVIÐ KEPPNISSTJÓRNAR

1. Keppnisstjóri er ábyrgur fyir framkvæmd keppni. Hann hefur endanlegt ákvörðunarvald varðandi það sem lítur að keppninni, keppnisaðstæðum og hönnun.

2. Keppnisstjóri er málsvari keppnisstjórnar varðandi brot á reglum. Hann getur vísað mönnum úr keppni og af keppnissvæði.

3. Keppnishaldarar (Aðildarfélög) skulu taka á öðrum brotum en þeim sem falla beint undir kepnnisstjóra.

4. Keppnisstjóri og Tæknistjóri skulu geta sýnt fram á hverjir þeir eru.

5. Endanleg úrslit skulu vera undirrituð af keppnisstjóra, afrit afhent keppnishaldara til birtingar og dreifingar.

6. Tæknistjóri skal beita viðurkenndum skoðunaraðferðum og víkja sé hætta á hagsmunaárekstrum.

7. Keppnisstjórnendur verða að vera hlutlausir aðilar.

8. Keppnisstjórnendur mega keppa í öðrum flokkum en þeim sem þeir stjórna.

9. Keppnisstjóri getur aflýst keppni vegna öryggis keppenda eða áhorfenda og skal þá ákvarða úrslit ef einhver eru.Hann getur stytt keppni vegna öryggisástæðna en skal láta keppendur vita með fyrirvara.

10. Keppnisstjóri metur áreiðanleika tímatökubúnaðar.

REGLUR: ÓBREYTTIR FLOKKAR

VÉL

Vél má með engu móti breyta. Hámarks útborun er 0,5 mm.

DRIF

Drifkerfi verður að vera óbreytt. Nota má hvaða vigtar, gorma, reimar og drifhlutföll sem fáanleg eru frá framleiðanda sem íhluti. Bremsum má á engan hátt breyta.

FRAMFJÖÐRUN OG STÝRING

Hámarksbreidd 43,5 ¨ tommur milli meiða. Breyta má fjöðrunarlengd, lágmarksfjöðrun 2 ¨. Styrkja má hluti með suðu og álagningu. Nota má hvaða dempara sem er. Nota má hvaða stýri sem er, endar stýris verða að vera lokaðir og stýri með púða. Stýrisstöng má ekki breyta. Handföngum má breyta, bremsa verður að vera vinstra megin og bensíngjöf þumalgjöf.

SKÍÐI OG MEIÐAR

Nota má hvaða skíði sem er. Skíði verða að vera með lykkjum að framan og lykkjan verður að ná framm fyrir og undir enda skíðins að framan. Skíði má styrkja. Hámarkslengd karbíts er 10¨ og topphorn 60°. Stýrismeiðar mega vera að hámarki 16 mm háir.

BÚKKAFJÖÐRUN

1. Búkki verður að vera í upprunalegum festingum.

2. Meiða má ekki stytta eða beygja.

3. Fjarlægja má og bæta við hjólum.

4. Meiðasmurning bönnuð.

5. Breyta má gormum og dempurum.

BELTI OG SPYRNA

Nota má öll viðurkennd belti. Negla má 96 nagla í miðju beltis. Naglar mega ná 9 mm upp fyrir spyrnur. Naglar verða að vera festir fyrir aftan heila spyrnu Naglar skulu vera sívalir og 60° oddur. Ekki má nota Titanium nagla Ekki má negla yfir merkingu beltis.

GRIND OG SKROKKUR

1. Skrokkur skal vera upprunalegur með framleiðslunúmerum.

2. Styrkja má með suðu og álagningu.

3. Ekkert má fjarlægja með borun eða á annan hátt.

4. Hámarksbreidd 43,5¨milli meiða.

5. Nota skal upprunalegt húdd eða með upprunalegri lögun. Loka má kæliraufum en engum bæta við.

6. Húdd má ekki fjarlægja.

7. Vindhlíf skal vera upprunaleg eða af sömu stærð.

8. Sæti skal vera upprunalegt, það má bólstra eða bæta við púðum. Sæti má lækka en verður að lágmarki að vera 5¨ tommu þykkt.

9. Einangrun má ekki fjarlægja.

10. Hlífðarpönnur má nota en verða að vera vel festar.

11. Styrkja má skúffu við búkkafestingar.

12. Skúffuvörn /Naglavörn má breyta að vild.

13. Stuðurum má breyta eða fjarlægja.

14. Bensíntankur skal vera upprunalegur.

15. Aðrir hlutir mega ekki hindra bensínleiðslur.

RAFKERFI OG KVEIKJA

1. Allir sleðar skulu útbúnir neyðarádrepara sem verður alltaf að vera virkur. Þetta er á ábyrgð ökumanns.

2. Hámarkslengd ádreparasnúru er 5 fet.

3. Ádreparasnúra verður að vera tryggilega fest ökumanni.

4. Ádreparinn verður að vera tryggilega festur og má ekki vera á stýri.

5. Ádreparinn verður að drepa á rafknúnum bensíndælum.

6. Tryggilega verður að vera gengið frá rafgeymum.

7. Neyðarádrepari verður að vera á stýri.

8. Fjarlægja má raflagnir.

9. Bremsuljós skulu vera upprunaleg og virk í upphafi keppni, varin brotum með glærri filmu.

ELDSNEYTI

Nota má hvaða bensín sem er. Race fuel leyft veturinn 2008 Nota má hvaða tvígengisolíu sem er.

REGLUR: BREYTTUR/OPINN FLOKKUR

1. Sleðar verða að uppfylla öryggiskröfur.

2. Allir sleðar verða skoðaðir af keppnisstjórn með tilliti til öryggis og hávaða.

3. Allir sleðar skulu vera útbúnir neyðarádrepara sem stöðvar vél og rafknúnar bensíndælur séu þær notaðar. Neyðarádreparasnúra skal vera örugglega fest notanda, ALLTAF þegar mótor er í gangi.

GRIND OG SKROKKUR

1. Allar vélastærðir leyfðar.

2. Sleði skal hafa; húdd, botnpönnu, vindhlíf, sæti með upprunalegri lögun og aflokaðan beltisgang.

3. Hlífar skulu vera yfir hreyfanlegum hlutum s.s. kúplingum, reimum og drifum.

DRIFKERFI

1. Allar kúplingar leyfðar.

2. Kúplingahlífar skulu ná niður að miðju kúplinga og vera úr áli eða jafntraustu efni.

3. Endar stýris skulu vera lokaðir.

4. Púði á að vera á stýri.

LJÓS

1. Afturljós og bremsuljós eiga að vera virk.

STJÓRNTÆKI

1. Bremsa skal vera virk og vera vinstra megin á stýri.

2. Eldsneytisgjöf skal vera þumalgjöf.

FRAMFJÖÐRUN OG STÝRING

1. Hámarksbreidd 43.5 ¨ (tommur) og meiðar á miðjum skíðum.

2. Lengd karbíta ótakmörkuð.

BELTI OG SPYRNA

1. Aðeins leyfð gúmmíbelti

2. Allar lengdir má nota.

3. Belti verður að vera steypt í heilu lagi og vera frá viðurkenndum framleiðanda.

4. Beltisbreidd er ótakmörkuð. Negla má 96 nagla í miðju beltis. Naglar mega ná 9 mm upp fyrir spyrnur. Naglar verða að vera festir fyrir aftan heila spyrnu Naglar skulu vera sívalir og 60° oddur. Ekki má nota Titanium nagla Ekki má negla yfir merkingu beltis.

Ítrekuð brot á reglum geta valdið brottvísun úr keppni og keppnisbanni.

SKYLDU NIÐURRIF

1. Tæknistjóri getur valið hvaða sleða sem er til niðurrifs og skoðunar, þá verða ökumenn látnir vita að keppni lokinni.

2. Neiti ökumaður er hann dæmdur úr leik.

3. Ökumaður eða aðstoðarmaður rífa niður eftir óskum Tæknistjóra.

4. Samsetning er ekki á ábyrgð skoðunarhópsins.

5. Ökumaður og aðstoðarmaður hans eru þeir einu sem mega vera á svæði niðurrifs/skoðunar.Á meðan þessu stendur eru keppnishaldarar ekki ábyrgir fyrir sleðanum.

BROTTVÍSUN AF KEPPNISSTAÐ

Keppnnisstjóri hefur heimild til að vísa hverjum sem er af keppnisstað, telji hann ástæðu til.

FRAMFERÐI Á KEPPNISSTAÐ

1. Ljótt orðbragð, rógur og móðganir geta valdið brottvikningu af keppnisstað, beita má sektum og refsingu.

2. Hver sá sem hótar líkamlegu ofbeldi eða móðgar starfsmenn keppni, ökumann, aðstoðarmenn o.s.frv. mun sæta refsingu, brottvikningu eða sekt.

ÁBYRGÐ ÖKUMANNS Á AÐSTOÐARMÖNNUM

Ökumaður ber ábyrgð á aðstoðarmönnum sínum, verði þeir til vandræða sætir ökumaðurinn refsingu og dæma má hann úr leik.

KRÖFUR KEPPNISSLEÐA

Keppnissleðinn er á ábyrgð ökumanns. Ávíta má ökumann sé sleðinn breyttur svo líta megi á það sem svik við aðra keppendur og keppnisstjórn.

DÆMA MÁ ÖKUMENN ÚR LEIK FYRIR:

. Að aka án húdds eða hlífa á réttum stöðum.

. Að aka vítaverðan akstur.

. Að aka án keppnisnúmera sinna á réttum stöðum.

. Að þiggja óheimila aðstoð.

. Að ef ökumaður, hópur þeirra eða aðstoðarmenn reyna að áreita starfsmenn keppninnar á einhvern hátt.

 

1. Að stytta sér leið í braut.

2. Að stoppa ekki til skoðunar eftir keppni.

3. Að nota ekki réttan öryggisbúnað.

4. Að sýna aðgæsluleysi á viðgerðarsvæði.

5. Að leyfa óskráðum ökumanni að aka keppnissleða sínum í upphitun eða í keppni á braut.

6. Að aka með hjálm óspenntann.

7. Að ef neyðarádrepari virkar ekki sem skyldi, verður ökumaður dæmdur úr leik í þeim riðli.

8. Að ekki hlíða fyrirmælum keppnisstjóra.

REFSA MÁ ÖKUMANNI Á RÁSLÍNU FYRIR:

1. Þjófstart.

2. Að verða valdur að endurræsingu þá færist ökumaður afturfyrir í endurræsingu.

3. Að mæta með aðstoðarmann á ráslínu,

4. Að spóla úr belti á ráslínu (á að gerast lámark 10m fyrir aftan ráslínu).

LÝSING BRAUTAR OG KRÖFUR

1. Braut skal skal vera merkt skýrt og greinilega.

2. Breidd brautar skal verða 8-10 metrar. Lengd ekki minna en 600m. Á ráslínu telst sleðabreidd vera fimm fet (5 feet).

3. Öryggissvæði utan brautar skal vera 13 metrar að breidd.

4. Borði í endamarki á að vera að lágmarki 3 metra frá jörðu og 8 metrar milli staura.

5. ÖRYGGISSKOÐUN BRAUTAR SKAL FARA FRAM FYRIR KEPPNI OG LAGFÆRINGAR GERÐAR EF ÞURFA ÞYKIR.

6. Keppni er samsett úr 2 riðlum og 1 úrslitahít.

7. Riðill skal verða ca 12 mín að lengd og Úrslit ca 15mín.

8. Loftnet vegna tímatökubúnaðar skal vera dregið í rör sem eru með 60cm millibil og 20cm undir yfirborði brautar.

9. Loftnet má ekki liggja ofan á stökkpalli.

10. Auðkenna skal staðsetningu tímatökubúnaðar í braut með stikum beggja vegna brautar.

11. Aðstaða fyrir endamarksflaggara skal vera við loftnet. Ekki er heimilt að flagga út fyrir framan loftnet og að hámarki má flagga út 2m fyrir aftan staðsetningu loftnets.

FLOKKUN

1. Stig til meistara er ekki hægt að taka með sér milli flokka.

2. Hægt er að fella út eða sameina flokka séu færri en fjórir skráðir þegar skráningu lýkur.

3. Sleði má keppa í fleiri en einum flokki ef hann stenst flokkun.

4. Greinarnar eru flokkaðar skv. eftirfarandi flokkun er gildir 2008.

5. Flokkar

Meistaraflokkur: Opin flokkur.
Sport flokkur: opinn flokkur.
Unglingaflokkur: (keyra eftir reglum um óbreyttur flokkur) 0-600cc keyrt til reynslu veturinn 2008 2008 600cc sleðar mega einungis keyra á bensíni sem fæst á almennum bensínafgreiðslum.(semsagt racefuel bannað)
Kvennaflokkur: opinn flokkur
+35 Flokkur: opinn flokkur

HÆFIR KEPPENDUR

1. Ökumaður skal hafa réttindi til aksturs sleðans.(sjá reglugerð Dómsmálaráðuneytis).

2. Unglingar (14 ára á árinu) verða að hafa skrifleg samþykki foreldra/forráðamanns.

3. Unglingur þarf að hafa undanþágu sýslumanns skrifega.

ÞÁTTTÖKUUMSÓKNIR/ÞÁTTTÖKUGJÖLD/TRYGGINGAR

1. Skráningu lýkur mánudaga kl. 22:00 fyrir keppnishelgi, eða þrem dögum fyrir keppni. Skráning er á vef MSÍ www.msisport.is 1. Keppnishaldara er skylt að auglýsa skráningu og fund með keppendum. Á fundinum verða öll keppnisgögn birt og annað er keppnina varðar upplýst.

2. Keppendur skulu framvísa öku, keppnis/félagsskírteini ásamt tryggingaviðauka við skráningu.

BREYTINGAR/TÚLKUN

1. Keppnisstjórn og dómnefnd áskilja sér rétt til að leiðrétta eða bæta við ákvæði í gildandi reglum, skv. lögbók. Þátttakendum mun þegar verða tilkynnt um allar breytingar.

2. Allar leiðréttingar og viðbætur við reglurnar munu verða tilkynntar í dagsettum og tölusettum upplýsingaskýrslum sem upp frá því verða hluti núverandi reglna. Þessar upplýsingaskýrslur verða birtar á upplýsingatöflu keppninnar.

3. Keppnisstjóri er ábyrgur fyrir því að beita þessum reglum og viðaukum þeirra á meðan keppni stendur í samráði við dómnefnd.

4. Sérhver röng, sviksamleg eða óíþróttamannsleg hegðun af hendi keppenda eða áhafnar mun verða dæmd af dómnefnd keppninnar sem má refsa viðkomandi, jafnvel með brottrekstri úr keppni.

SKYLDUR KEPPENDA

ÖKUMAÐUR

1. Keppendur skulu ávallt fara eftir fyrirmælum starfsmanna keppninnar.

2. Keppendur skulu ekki fara af keppnisstað og vera við sleðann sinn meðan á keppni stendur.

3. Hann skal framvísa kvittun fyrir keppnisgjaldi í skoðun.

4. Á meðan keppni stendur skulu keppendur:
a) Hafa viðurkenndan öryggishjálm
b) Vera í hlífðarfötum, þ.e.a.s. viðurkenndum vélsleðagalla (þykkur jakki og buxur eða þykkur heilgalli) eða mótorhjólagalla.
c) Vera í hönskum og uppháum vélsleðaskór

5. Keppanda er skylt að tilkynna næsta starfsmanni keppninnar ef slys á sér stað í braut.

5. Keppnisstjórn skal sjá til þess að farartæki sé á keppnisstað til að flytja keppanda ef hann slasast.

6. Sannist að keppendur hindri framúrakstur annarra keppenda, loki leiðum fyrir öðrum keppendum að yfirlögðu ráði, eða torveldi með einum eða öðrum hætti framgang annarra keppenda getur það varðað brottvísun úr keppni. Sama á við um aðra óíþróttamannslega hegðun. Brautarverðir tilkynni slíkt til keppnisstjóra.

7. Telji keppnisstjórn eða dómnefnd að keppandi sýni vítavert gáleysi í akstri, getur það varðað brottvísun úr keppni. Keppnisstjórn getur stöðvað þátttöku keppenda hvenær sem er, teljist þeir óhæfir til keppni.

8. Eftir að keppnisbrautum hefur verið valinn staður, er akstur keppnissleða á þeim bannaður, nema samkvæmt dagskrá, að viðlagðri brottvísun úr keppni.

9. Aðstoðarmönnum keppenda er bannað að vera með útsendingar á útvarpstíðni.

10. Keppandi ber ábyrgð á að aðstoðarmönnum sínum og að þeir uppfylli framangreind skilyrði. Öll brot aðstoðarmanna á reglum þessum eða fyrirmælum starfsmanna keppnisstjórnar skrifast á viðkomandi keppendur og þeim refsað sem þeir hafi brotið af sér sjálfir.

11. Keppendur og aðstoðarmenn skulu vera merktir keppenda og er þeim með öllu óheimilt að vera á ráslínu við ræsingu til aðstoðar.

Tímatökusendar

1. Tímatökusendir skal vera í samræmi við tímatökubúnað.

2. Keppandi eru ábyrgur fyrir því að sendir séu full hlaðinn á keppnisdag og tryggilega festur kúpplingamegin eigi ofar en 120cm frá jörð og ekki framar en sveifarás vélar.

3. Sendar eru prófaðir með þar til gerðu tæki frá framleiðanda. Ef sendir stenst ekki prófun hefur keppandi tækifæri á að útvega sér annann tímatökusendi en tilkynna verður tímaverði um breytinguna.

KEPPNISMERKINGAR/AUGLÝSINGAR

1. Keppendum er heimilt að setja hvaða auglýsingar sem er á sleðana að því tilskyldu að þær:

a) Samrýmist íslenskum lögum og reglum MSÍ um auglýsingar.
b) Innihaldi ekki móðgandi efni og stangist ekki á við almennt velsæmi.
c) Þrengi ekki að keppnismerkingum.
d) Trufli ekki útsýni keppenda eða skapi að öðru leiti hættu.

2. Hver sá sleði sem ekki uppfyllir skilyrði í grein 13.1 mun ekki verða veitt rásleyfi.

3. Keppnismerki eru merkingar þær sem keppandi setur á sleðann, hvort sem er auglýsingar eða rásnúmer (stærð A4). Á hverjum sleða skal vera þar til gerður flötur, á hvorri hlið fyrir keppnismerkingar. Einnig skal keppandi bera keppnisnúmer á bakinu.

ALMENNT

1. Keppnisstjóri skal skilyrðislaust halda fund með starfsmönnum keppninnar.

2. Keppnisstjóri dæmir um, hvort tímamælingatæki séu í lagi.

3. Keppendum og aðstoðarmönnum þeirra er, að viðlagðri brottvísun, óheimill aðgangur að stjórnstöð á meðan keppni stendur yfir, nema keppnisstjóri heimili annað. Aðeins keppendur mega koma með athugasemdir við keppnisstjóra eða fulltrúa hans, áður en keppnisgreinar hefjast, eða eftir að þeim er lokið skv. ákvörðun keppnistjórnar.

4. Keppnisstjóri getur ákveðið að láta keppni hefjast á ný. Ákvörðun keppnisstjóra er endanleg.

5. Ökumaður og sleði skoðast sem ein heild. Þegar keppni er hafin má ekki skipta um sleða eða ökumann.

6. Stranglega er bannað að ýta vélsleða í gagnstæða átt við keppnina. Snúist sleði við í braut má ökumaður snúa honum við til að halda áfram keppni að því tilskyldu að brautin sé auð.

7. Endamarkslína skal vera greinilega merkt. Ökumaður má ýta sleðanum af eigin afli yfir endamarkslínu sé það óökufært, hann hefur 3 mín. til þess.

8. Keppnishaldara er skylt að útvega svæði til prufuakstur. Það skal vera hindrunarlaus slóð með bremsukafla í enda. Áhorfendur eru bannaðir á þessu svæði.

9. Gera má við sleða í pitt.

10. Skylt er að nota upphitunarpalla þegar hreinsa á vél eða belti í uppröðunar og/eða á rássvæði. Pallar þessir það sterkir að þeir haldi þeim hlutum sem hugsanlega losna úr belti

11. Verði óhapp skal skoðunarmaður/öryggisfulltrúi úrskurða hvort ummræddur sleði uppfylli öryggisatriði til endurræsinga.

12. Slasaðan eða að öðru leyti óhæfan ökumann skal útiloka frá keppni nema keppnisstjóri/öryggisfulltrúi álíti að ökumaður skapi ekki sjálfum sér eða öðrum hættu.

13. Slökkvitæki A B C gerðar amk. 5 kg skulu vera á keppnisstað.

14. Allur hraðakstur utan keppni er bannaður.

15. Keppnistjórn skal hafa búnað til að fjarlægja sleða úr braut.

SNOCROSS

1. Hvert hít skal taka 10 til 12 mín., en úrslit 12 til 15mín, í opnum flokkum, en má vera minna í unglinga og kvennaflokki. Keppnisstjórn gefur upp hringjafjölda fyrir keppni. Í endamarki skal sýnt á spjöldum fjölda hringja sem eftir eru. Þegar fyrsti keppandi kemur í mark þá ljúka allir keppendur keppni eftir að hafa ekið í gegnum endamark, þó þeir hafi ekki lokið uppgefnum hringjafjölda.

2. Ráshlið skal vera fyrir utan braut, en mark skal vera í brautinni. Æskilegt er að ráskafli sé frystur eða hertur með efnum.

3. Í ráshliði er strengd lína sem sleðar leggja að, hún er fjarlægð fyrir ræsingu. Eftir að línan hefur verið fjarlægð mega keppendur ekki hreyfa sleðann.

4. Ræsir skal standa hægra megin við braut ca. 30 til 40 m. frá ráslínu. Hann sýnir fyrst 15 sek. merki, síðan 5. sek. merki fyrir ræsingu. Ræst skal með því að lyfta flaggi frá lóðréttri stöðu. Raðari gefur ræsi merki með grænu flaggi þegar ræsing er heimil.

5. Raðari stillir sleðum upp á ráslínu og dæmir þjófstart ásamt ræsi. Þjófstarti keppandi skal hann ræsa fyrir aftan fremstu ræsingarlínu.

6. Beygjur í braut skulu afmarkaðar með hliðum, sem staðsett skulu utan ruðninga.

7. Aki keppendi niður stiku/hlið skal hún vera reist aftur af starfsmanni, ef sami ökumaður gerið þetta aftur er heimilt að svartflagga aðvörun,eða svartflagga út úr hítinu.

8. Yfirbrautarvörður sér um að koma upplýsingum í stjórnstöð frá brautarvörðum.

9. Allir sleðar skulu stöðva við rautt flagg. Ræsir gefur ökumönnum til kynna hvenær á að færa sleðana og lætur þá fara hægt aftur á ráslínu.

10. Sitji tveir eða fleiri eftir á ráslínu (fara styttra en 15 m.) skal endurræst.

11. Keppandi sem veldur því að hefja þarf keppni á ný eða hver sá keppandi sem ófær er um að snúa umsvifalaust aftur að ráslínu er settur afturfyrir byrjunarröðina. Hafa má einn aðstoðarmann fyrir hvern sleða í brautinni komi keppandi ekki sleðanum í gang ( háð leyfi keppnisstjóra), en hann má ekki inna af hendi neina tæknivinnu.

12. Sé keppni endurræst eftir meira en einn hring verða keppendur ræstir hver á eftir öðrum. Keppendur skulu vera komnir að ráslínu innan 2 mín. sé endurræst.

13. Keppni skal hafin á ný þar sem síðasti talin hringur endaði. Hafi aðeins einn hringur, eða minna verið ekinn, skal endurræst.

14. Pittur skal vera 20 til 40 m. fyrir aftan ráslínu. Einn pittur fyrir alla og allar viðgerðir leyfðar. Tilbakabraut skal vera að pitti við hlið rásmarks.

SKOÐUN/REFSINGAR SKOÐUN

1. Skoðun keppnissleða fer fram samkvæmt dagskrá keppninnar.

ÚRSLIT/KÆRUR/ÁFRÝJANIR ÚRSLIT

1. Úrslit verða birt eftir hverja grein. Einnig skulu birt úrslit í einstökum brautum/hítum á sama stað.

2. Eftir keppni skulu allir sleðar í verðlaunasæti fara í pitt uns skoðun lýkur. Aðrir mega yfirgefa keppnisstað.

3. Keppnishaldara er skylt að skila úrslitum til MSÍ á tölvutæku formi undirritað af keppnisstjóra

KÆRUR/ÁFRÝJANIR

1. Allar kærur og áfrýjanir skal leggja fram og þær meðhöndlaðar skv. lögbók. Skriflega innan 30 min eftir að úrslit hafa verið birt og greiða þarf 5.000kr við innlagningar á kæru.

VERÐLAUN/VIÐURKENNINGAR

1. Verðlaun verða samkvæmt dagskrá keppninnar. Viðaukar/sérákvæði Skilda er að hafa áberandi appelsínugulan lit á baki ökumanns.

 

Snocrossnefnd MSÍ

Bókun


Veldu dagssetningu
Veldu dagssetningu

Dagatal

« September 2010 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930 

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning