Er ekki tilvalið að skreppa í Mývatnssveit um páskana og slappa af á notalegu hóteli, láta dekra við sig og njóta þess sem Mývatnssveit hefur upp á að bjóða.
Bjóðum tilboð í gistingu um páskana.
kr. 5.450.- á mann
í tveggja manna herbergi með morgunverði
7.900.- í eins manns herbergi með morgunverði
þriðja nóttin frí
Veitingastaðurinn verður lokaður laugardaginn 3. apríl vegna einkasamkvæmis
*******************
Píslargangan
Píslargangan verður á sínum stað á föstudaginn langa en þó
með örlítið breyttu sniði. Dagurinn hefst á því að prestarnir sr. Þorgrímur Daníelsson á Grenjaðarstað
og sr. Örnólfur Ólafsson á Skútustöðum syngja morguntíðir í Reykjahlíðarkirkju kl. 8:45.
Gangan hefst síðan við kirkjuna kl. 09:00 og er lagt að stað undir klukknahljómi kirkjunnar. Engin tímamæling eða skráning fer fram en við
upphaf göngunnar og einnig að henni lokinni liggur frammi gestabók og er vel þegið að göngufólk skrifi nafn sitt í hana og aðrar hugleiðingar
um viðburð þennan.
Selt verður merki göngunnar til að standa undir kostnaði og er verði stillt í hóf.
Bíll fylgir göngufólki þar sem hægt er að geyma skó, föt til skiptanna og nesti.
Sr. Örnólfur mun lesa passíusálmana í Skútustaðakirkju í tilefni dagsins og er upplagt að gera hlé á göngunni og
hlýða á nokkra sálma.
*******************
Tónleika Ljótu hálfvitanna verða í Skjólbrekku á föstudaginn langa kl. 21.30.
*******************
Kammertónleikar í
Mývatnssveit
Mývetningar,
ferðafólk.
Munið hina árlegu
páskatónleika.
Í Skjólbrekku á skírdag 1. apríl
kl. 20:00.
Sjóðheit tangótónlist frá Argentínu
ásamt þekktumSönglögum, íslenskum og
erlendum.
Í Reykjahlíðarkirkju föstudaginn langa 2.
apríl kl. 21:00.
Þar verður flutt tónlist eftir m.a. Bach, Corelli, Bottesini,
Chopin.
Flytjendur
eru:
Gissur Páll Gissurarson
tenór
Laufey Sigurðardóttir
fiðla
Hávarður Tryggvason
kontrabassi
Kristinn H. Árnason
gítar
Jón Þorsteinn Reynisson
harmonika
Aladar Rácz
píanó/orgel.
Aðgöngumiðar seldir við
innganginn.
*******************
Flottar snjósleðaleiðir út frá Mývatni, skautasvell og gönguskíðaleiðir.
Gleðilega páska!





