Mývatn open

Mývatn Open 2013

Hið feyki vinsæla hestamót Mývatn Open - Hestar á ís verður haldið helgina 22. og 23. febrúar.
Hestamannafélgið Þjálfi býður í reiðtúr út á frosið Mývatn á föstudeginum og er öllum hjartanlega velkomið að taka þátt í því að kostnaðarlausu.

Sel-Hótel Mývatn býður knöpum upp á samlokur og heitt kakó út í eyju.

Síðan hefst mótshaldið á laugardeginum sem endar með hestamannahófi á Sel - Hótel Mývatni um kvöldið.

Hesthúsapláss hefur ekki verið vandamál hingað til og mun Marinó (s. 8960593) aðstoða ykkur við að hýsa hestana.

Dagskrá

Hópreið um Mývatn kl. 16:30 - 18:30 (allir velkomnir)

Laugardagur 23. mars

Kl. 10:30 Tölt B Ekkert aldurstakmark
Kl. 13:00 Tölt A
Stóðhestakeppni
Skeið
Verðlaunaafhending yfir kaffihlaðborði í Selinu
Kl. 19:30 Húsið opnar fyrir stemmingu kvöldsins,
Videosýning frá afrekum dagsins á breiðtjaldi
Kl. 20:30 Hestamannahóf hefst - öllum opið.
Kl. 23:30 Kráarstemning og lifandi tónlist fram á nótt

Stóðhestakeppni- þar sem að alhliða og klárhestar etja kappi saman. Riðnar verða þrjár ferðir fram og til baka(samtals 6.ferðir) Fyrsta ferð hægt tölt og milliferðartölt til baka. Önnur ferð brokk og yfirferð til baka og má þá knapi velja milli skeiðs og tölts. Þriðja ferðin er svo frjáls báðar leiðir , þar sem knapinn má sýna allt það besta sem hesturinn hefur uppá að bjóða.

Skráningar hefjast Sunnudagskvöldið 10. mars og standa til miðvikudagskvölds 17.mars á netfanginu birnaholmgeirs@hotmail.com

Upplýsingar um nafn, föður, móður, lit, aldur, eiganda og knapa þurfa að koma fram (frekari uppl.um mótið og ráslisti verður á heimasíðu Þjálfa sem er www.123.is/thjalfi).

Skráningargjald er kr. 4.000,- og er borgað á staðnum í síðasta lagi klukkutíma áður en keppni hefst.

Vegleg verðlaun í boði (nánari uppl. verða á www.123.is/thjalfi)

Sel-Hótel Mývatn býður upp á gistitilboð

kr. 7.450,- á mann í tveggja manna herbergi og aukanótt 3.900,- á mann með morgunmat. Kr. 10.900,- í eins manns herbergi.
Morgunmatur innifalinn.

Þriggja rétta glæsilegur kvöldverður og hestamannahóf á laugardagskvöldinu verð kr. 7.900,- á mann.

Hestamenn fjölmennum og höfum gaman saman!

Bókanir í s. 464 4164 eða
myvatn@myvatn.is
Hestamannafélagið Þjálfi og Sel-Hótel Mývatn

Úrslit 2012

Úrslit Mývatn Open 2011

Úrslit Mývatn Open 2010

Úrslit Mývatn Open 2009 


img_2201_1

img_1987_1


img_2201_1

Myndir frá Mývatn Open 2009 

 jnna_7
Jónína frá Feti

258

Bókun


Veldu dagssetningu
Veldu dagssetningu

Dagatal

« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning