Konudagurinn 19.febrúar 2012

Mér er skemmt!

 

Sagnastund og brunch á Sel-Hótel Mývatni konudaginn 19. febrúar.

Boðið verður upp á fjölbreyttan og matarmikinn árbít (brunch)  kl. 11:00.

Þingeyskir, eyfirskir og sunnleskir sagnamenn munu skemmta og segja sögur af fólki.

Gunnar Hallgrímsson bóndi í Klambraseli fer með gamansögur.

Sveinn Jónsson ferðaþjónustubóndi frá Kálfsskinni les skemmtisögur m.a. úr bók sinni Steingrímur Eyfjörð læknir.

Jóhannes Sigmundsson fyrrverandi kennari og ferðaþjónustubóndi frá Syðra-Langholti í Hreppum mun m.a. segja frá sínum fyrstu kynnum við  Þingeyinga í fjárskiptaferðum sínum 1952.

Sif Jóhannesdóttir forstöðumaður menningamiðstöðvar Þingeyinga mun stýra skemmtuninni.

Verð fyrir árbítinn og skemmtun eru 2.500,-

 

Vinsamlega pantið í síma 464 4164 fyrir laugardagskvöldið 18. febrúar.

 

Í tilefni af konudeginum bjóðum við upp á glæsilegan kvöldverð laugardagskvöldið 18. febrúar og konudagskvöldið 19. febrúar.

                                                                                     

                                  

Forréttur

 

Sjávarréttasalat með hörpuskel, rækjum og humri

 

Aðalréttur

 

Appelsínu gljáð Kalkúnabringa eða grillað nautafillé með piparsósu og fondant kartöflu, steiktu grænmeti og sósu

 

Eftirréttur

 

Heit súkkulaðikaka heimabökuð með ís, jarðaberjum og rjóma

 

Verð kr. 6.500,-

 

Vinsamlega pantið tímanlega í síma 464 4164 eða á netfanginu myvatn@myvatn.is

Frekari upplýsingar á www.myvatn.is

 

Verið velkomin

 

Sel-Hótel Mývatn

Skútustöðum, Mývatnssveit

Afþreying, slökun, vellíðan

Bókun


Veldu dagssetningu
Veldu dagssetningu

Dagatal

« Maí 2012 »
SMÞMFFL
 12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031 

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning