Jólasveinarnir í Dimmuborgum

 jolasveinrniri_dimmuborgum_minni_120


Út er komin ný bók um Jólasveinana í Dimmuborgum.

 Ferðalangar sem koma í Mývatnssveit í desembermánuði mega eiga von á mikilli skemmtun því þar er hægt að hitta sjálfa jólasveinana! Í úfnu hrauni eiga þeir rúmgóðan helli ekki langt frá heimkynnum Grýlu og þangað fá þeir bréf víðs vegar að úr heiminum.  

Í þessari skemmtilegu bók má lesa um jólasveinana þrettán, heimkynni þeirra í Dimmuborgum og söguna af því af hverju þeir völdu að búa einmitt þar. Bókin er skreytt glæsilegum ljósmyndum af sveinunum á heimaslóðum. 

Yngvi Ragnar Kristjánsson er nágranni og vinur jólasveinanna og birtir sögur þeirra hér með fullu leyfi sveinanna. Hann er höfundur að texta bókarinnar ásamt Brynhildi Þórarinsdóttur. Ragnar Th. Sigurðsson er eini ljósmyndarinn sem jólasveinarnir hleypa inn í hellinn sinn.  

Mál og menning gefur út.

Panta bókina á

myvatn@myvatn.is

Nánar um bókina

 

Bókun


Veldu dagssetningu
Veldu dagssetningu

Dagatal

« September 2010 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930 

Deildarval

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.11 2007 - Stefna ehf

Innskráning